Framkvæmdaryfirlit / Construction overview

8. október 2007
Jæja þá erum við að leggja aftur í framkvæmdargírinn. En stálbitarnir fyrir þakið eru komnir og ætla Einar og pabbi að fara í þá í þessari viku. Er stefnan að vera búin að setja þá upp áður en Klemens kemur, en ætli það verði ekki í byrjun næstu viku. Hann ætlar að hjálpa okkur með þakið svo að þeir verði fjórir karlarnir í þessu. En Halldór er jú búinn að bjóðast til að aðstoða, er svo anski hjálplegur hann Halldór okkar. Enda líka alveg nautsterkur. Það verður alveg frábært að sjá húsinu lokað, þ.e. komið með þak og glugga. En gluggarnir eiga að koma um miðjan nóvember. Svo að núna er staðan sú að við þurfum að fara að pressa á arkítektinn sem er ekki enn búinn með spesteikningarnar, en við fáum ekki folheldistvottorð fyrr en hann skilar inn teikningunum sínum. Sem jú auðvitað þýðir að við fáum ekki að breyta láninu í venjulegt íbúðalán. En vonandi endar staðan ekki þannig að við höfum fokhelt hús en ekki alla pappíra.

Ingimar kíkti heim á klakann í september og fórum við Einar með hann upp í hús, svona til að sýna honum gripinn í raun og veru en ekki alltaf á myndum. Held ég að hann hafi bara verið nokkuð hrifinn, enda ekki annað hægt.

Now we are about to embarke upon some construction again. The steel beams have been delivered and my dad and Einar plan on starting to get them up this week. The aim is to get them all up and placed before Klemens arrives, which should be early next week. He is going to come and help us with the roof so there will be four guys doing that. Halldór has of cause offered to help, which is fantastic as he is as strong as an ox  It will of cause be quite fantastic to actually get to see the house closed up before winter. The windows are due to arrive around middle of November. So now we will have to call the architect and get him to move on as we will not get the approvements if he has not handed inn all his blue prints.

Ingimar poped over to Iceland in September and Einar and I took him to check out the house, just so he could actually see it in real life instead of just on pictures. I am pretty sure that he liked it, but how can you not!

2. ágúst 2007
Jæja kominn tími til að uppfæra síðuna. En mikið hefur gerst síðan við skrifuðum hérna síðast. En staðan í dag er sú að allir veggir eru steyptir og er alveg sérstaklega góð tilfinning að sjá veggina uppkomna og fá loksins að sjá hvernig gluggarnir lítu út í raun og veru. Núna erum við í circa tveggja vikna pásu áðurn en byrjað verður að vinna við uppsetningu á þakinu.

It is about time to update this website. Lot of things have happened since we last wrote, but all the concreat walls are up now and it is a fantastic feeling to see them all and to be finally able to see out the windows as they are for real. We are taking about two weeks vacation from the house until we start working on getting the roof up.

12. júlí 2007
Búið er að steypa fyrsta hlutann af veggjunum og er alveg rosalega gaman að sjá veggina komna upp. Einungis er búið að slá frá um helming af því sem steypt hafi verið, en restin af mótunum verður fjarlægð á morgun. Svo er byrjað að setja upp mótin fyrir steypuatrennu númer 2 og er stefnt að því að steypa á þriðjudaginn í næstu viku og svo seinasta hlutann á annan mánudag.

The first partof the concreat is now inn and is it a fantastic feeling to see the walls up. Only half of the forms have been removed and the rest will be removed tomorrow. We have always begun to put the forms up for the second portion of the concreat and we hope that the concreat will be inn on Tuesday and then the last concreat portion will be inn on Monday the 23rd.

9. júlí 2007
Okkur tókst ekki að steypa í dag svo að næsta áætlun er að steypa á miðvikudaginn klukkan 1. Svo að Einar og Klemens eru á fullu að gera allt tilbúið og vonandi text það.

We weren't able to concreat the walls today so the new schedual is on Wednesday at 1 pm.

7. júlí 2007
Búið að reysa upp ytri veggi í meira en helminginn af húsinu, hengja upp gluggaúrtökin og járnabinda. Byrja að setja innri veggina og stefnt er að því að steypa þessa veggi á mánudaginn. Jón kom í dag og leysti mig af um fjögurleytið og hjálpaði til og voru þeir því fjórir áfram þrátt fyrir að ég væri farin heim.

Nýjar myndir komnar inn í albúmið.

The outer forms have been put up for more than half of the house, the window fittings and the iron bindings. They have begun to put the inner forms on and the plan is to put the congreat inn on Monday.

New pictures in the photo album.

---

4. júlí 2007
Kraninn kom í dag og var Árni lengi að aðstoða manninn að setja kranann upp og gangsetja.

The crain arrived today, and Árni - Einar's brother - assisted the guy in getting it all ready.

---

3. júlí 2007
Mótin koma, þ.e. helmingurinn af þeim svo að það er hægt að hefja einhvern uppslátt. Byrjað er á langvegnum og komast þeir langleiðina með hann í dag, þ.e. með ytri mótin.

The forms arrived today, well half of them, so they were able to start forming the walls and have half of the long wall up and standing.

---

2. júlí 2007
Mótin pönntuð og eiga að koma í dag ásamt krananum.

The forms have been ordered and should arrive today, as well as the crain.

---

1. júlí 2007
Klemens, pabbi hans Einar's kemur frá Danaveldi en hann ætlar að vera hjá okkur í fjórar vikur að hjálpa til í húsinu.

Einar's dad, Klemens arrives from Denmark but he plans on staying here with us for four weeks while working on the house.

---

29 - 30. júní 2007
Platan er í vökvun til að koma í veg fyrir að hún spryngi, enda þokkalegur hiti þessa dagana og mikil uppgufun.

The base is being watered to prevent it from cracking, but the temperatures have been rather high for the last few days.

---

28. júní 2007
Platan komin og allt tilbúið til að hefja uppslátt veggja. Einnig er búið að leysa málin við nágrannana og vonandi eru þá þessi vesen úr sögunni.

The base is done so now everything is ready and waiting for the walls. We have also solved the issues with the neighbours so hopefully we won't have any more run inns with them.

---

18. júní 2007 
Einar ræddi við verktakana á lóðinni við hliðin á en þeir vildu ekki kannast við að hafa rekist utan í súluna og halda því fram að hún hafi alltaf verið svona skökk. Lögreglan vildi ekki koma og taka skýrslu sem okkur fannst nú mjög lélegt. Hafnarfjarðarbær kom og tók út lagnirnar í dag og fengum við grænt ljós á þær. Var því fyllt upp að þeim. Stefán Már og Árni komu og hjálpuðu Einari og pabba í dag. Tókst þeim einnig að leggja drenlagnir svo að við þurfum að panta úttekt á þeim lögnum á morgun. Einnig var farið og sótt um heimtaug fyrir heitavatnið. Og lærði ég það í dag að heita vatnið, kalda vatnið og rafmagnið er ekki allt fengið á sama stað, heldur að fyrir Hafnarfjörðu þarftu að hafa samband við þrjá mismunandi staði til að fá þessa þrjá hluti tengda!

Einar spoke to the contractors on number 22 and they refuse any alligations on having driven into the foundation block and maintain that it was crooket like that before they entered our plot. The police did not want to come and do a report. Hafnarfjörður city came and took a look at the pipes and gave us a green light to continute so they finished the outdoor piping and do we need to get the city to come and take a look again tomorrow. We also applied for the hot water to be brought to the house today.

---

17. júní 2007
Einar og pabbi héldu áfram að leggja frárennslislagnir og náður að klára að setja þær niður. Á bara eftir að fylla upp að þeim með sandi.

Einar and my did finished putting the pipes down and all that is left now is to fill up to them with sand. 

---

16. júní 2007
Strákarnir ræstir út til að aðstoða eldsnemma í morgun. Mættu Stefán, Jón, Halldór, Árni auk Einars og pabba. Unnu vel og mikil í um 10 tíma. Mega vera rosalega stoltir af sér. En voru þeir að moka til að koma frárennslislögnunum fyrir.

We got the boys to come and assist us bright and early today. Stefán, Jón, Halldór, Árni as well as Einar and my dad came and worked for 10 hours. They did a fantastic job and can be really proud of themselves. They were preparing the foundations for some pipes.

---

15. júní 2007
Reyndar er að ná í okkur en árangurslaust og fara því smiðirnir á lóð númer 22 í leyfisleysi yfir okkar lóð á beltagröfu og keyra allt út og suður. Ekki var það nóg heldur keyrðu þeir utan í steyptasúlu sem heldur uppi þakskyggninu og er hún núna rammskökk. Ekki hefur tekist að ná í þá.

Since we were unreachable today the contractors from number 22 went accorss our plot with some heavy machinery and put everything askew. That wasn't enough but they  drove into a foundation block for a pillar that was due to hold up the roof that was leaning over the veranda, leaving it all crooked. We have yet to be able to reach them.

---

13. júní 2007
Verktakinn rekinn. Vorum ekki nógu ánægð með verktakann svo að honum var sakt upp formlega í dag.

Have fired the contractor for not doing an acceptable job.

---

8. júní 2007
Pönntuðum flug fyrir Klemens til að koma 1. júlí til að hjálpa okkur.

We made recervations for Klemens to come on July 1st to help us.

---

1. júní 2007
Búið að fylla upp í sökklana.

The foundations have been filled up.

---

16. maí 2007
Sökklar komnir að fullu og búið að slá frá. Nýjar myndir

Foundations ready. New pictures

---

4. maí 2007
Verktakinn er að flyta mótin yfir á lóðina til að get steypt sökklana í næstu viku. Lögðum inn raflagnateikningarnar.

The contractor is moving the molds to the plot in order to do the foundations next week. Handed inn the electrical blue prints

---

26. apríl 2007
Gluggateiknignar eiga að vera tilbúinar eftir klukkan 18. Fengum tilboð í steypuna. Pappírum skilað inn til Hafnarfjarðar til að fá nafnið á lóðinni á okkar nafn, áætlað á mánudaginn 30. Áætlað að verktakinn hefji störf á mánudaginn 30.

The window drawins should be available after 6 pm. Got bids for the concrete. Returned papers to Hafnarfjörður town to get the name change on the plot of land, should be done on Monday the 30th. Estimated that the contractor should begin working on Monday the 30th.

---

25. apríl 2007
Borgum fyrir rafmangsheimtaugina, rafmagnskarlarnir frá Hitaveitu Suðurnesja komu en það vantaði rafvirkjan okkar svo að við fáum rafmangið ekki fyrr en á mánudag en það var svo sem ekki búist við þeim þar sem þeir sögðust ekki koma fyrr en 26. Fengum tilboð í járnið. 

Paid for the electricity lines, the electricisans from the town came but our electrician wasn't available as they had said they wouldn't arrive till the 26th. Got bids for the iron.

---

24. apríl 2007
Sóttum um að fá rafmangsheimtaugina og borguðum skipulags- og bygginarframkvæmdargjöldin.

Applied to get the electricity lines brought to the house as well as paid various fees to the town.

---

23. apríl 2007
Rafmangstaflan sett upp í vinnuskúrnum. Fengum rafmangsteikingarnar af húsinu til yfirferðar breyttum og bættum við. 

Electric table is made ready in the work shed. Recieved the electrical blue prints for overview, changed and / or added few things.

---

22. apríl 2007
Okkur áskotnast timbur og steinull sem er flutt í gáminn til geymslu.

We are given timber and insoluation which we transport to the work shed.

---

20. apríl 2007 
Arkítektinn segist að við fáum gluggateikningar í næstu viku. Húsið fín útsett og gámurinn / vinniskúr er fluttur á svæðið.

The architect claims that we will get the windows blue print next week, the house is placed on the plot and the work shed is transported to the plot.

---

9. apríl 2007
Nýjar myndir settar í myndaalbúm /

New pictures in "Myndaalbúm"

---

7. apríl 2007
 
Alli gröfukall er byrjaðu á grunninum og er þokkaleg breyting á lóðinni síðan fyrir nokkrum dögum. Hann vonast til að klára þetta fljótlega og þá getum við farið að byggja sökkulinn. Þ.e. þegar við erum búin að fá vatnið og rafmagnið tengt og sett upp vinnuskúrinn sem við fáum lánaðann. Tókum fleiri myndir, koma inn við tækifæri.

---

2. apríl 2007
Alli gröfukall skefur aðeins af lóðinni til að athuga hvernig allt er. Vonanst til að byrja á fullu á morgun. 

The contractor has arrived to check out the machinery and to make sure it is all working properly. Hopes to start tomorrow.

---

1. apríl 2007
Grafan komin á lóðina.

The machinery has been moved to the plot.

---

30. mars 2007
Fyrsta skóflustungan. Fórum fjölskyldan og Sebastían fékk að taka fyrstu skóflustunguna fyrir grunninn á húsinu.

First dig, well went to the building plot and Sebastían got to be the first to use the shovel for the foundation.


Fyrsta skóflustungan / First dig




Fleiri myndir í albúminu / More pictures in the "Myndaalbúm"

---

22. mars 2007
Fengum lóðina á okkar nafn

The building plot singed off on our name.

---

14. mars 2007
Hafnarfjarðarbær samþykkir teiknigarnar

Blue prints confirmed.

---

20. desember 2006
Fórum með teikningarnar aftur til arkítektsins með lokabreytingunum.

---

28. nóvember 2006
Fyrsta uppkast af teikningunum tilbúið og leist okkur bara þokkalega vel á þær. Einungins minniháttar breytingar.

---

18. nóvember 2006
Nokkrar myndir teknar

---

15. nóvember 2006
Skiptum um hugmynd varðandi þakið, skjósum stafnþak í staðinn fyrir valmaþak.

---

13. nóvember 2006
Hittum arkítektinn og lögðum drög að húsinu.

---

-- október 2006

Skrifað undir lóðina.

Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 7
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 34922
Samtals gestir: 16389
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 11:38:52